Vagnhöfði 17, iðnaðarbil 112. Aðkoman er frá Dvershöfða
Um Eignaleigan
Eignaleigan sér um útleigu og rekstur á öllum gerðum af eignum.
Hægt er að velja um tvenns konar rekstrarform hjá Eignaleigunni:
Eignaleigan verður leigjandinn þinn.
Eignaleigan leigir eignina af þér og áframleigir hana. Með þessu er staðið við stóru orðin um að við leggjum orðspor okkar að veði þegar við veljum leigjendur því Eignaleigan er þinn leigjandi og ber ábyrgð á eigninni og leigugreiðslum á meðan á leigutíma stendur.
Þóknun Eignaleigunnar er 10-20% af mánaðarleigu fyrir þetta rekstrarform
Eignaleigan er til taks fyrir allt viðhald ef þess þarf
Eignaleigan rekur eignina þína.
Eignaleigan finnur leigjendur og vinnur sem umboðsaðili leigusala/eiganda
Þóknun Eignaleigunnar er 7,5% + vsk af hverri mánaðarleigu
Eignaleigan er til taks fyrir allt viðhald ef þess þarf
Allir viðskiptavinir Eignaleigunnar fá:
Eignirnar sínar skráðar í umsjónakerfi Eignaleigunnar þar sem haldið er utan um:
Alla leigusamninga og önnur skjöl er varða eignina
Allan kostnað og kvittanir fyrir viðgerðum og viðhaldi eignarinnar
Allar úttektir á eigninni með myndum og ábendingum á milli leigusamninga
Ásamt “fyrir og eftir” myndum þegar þarf að fara í viðhald og viðgerðir
Eignaleigan getur geymt í kerfinu öll skjöl sem eigandinn vill halda til haga, eins og
Ársreikninga húsfélagsins
Önnur skjöl er varða viðhald á sameign
Þegar kemur að sölu, þá getur þú sem eigandi selt eignina með fullri vissu um að það fylgir eigninni þinni fullkomið yfirlit yfir hvað hefur verið gert við eignina á meðan þú ert með hana í rekstri hjá okkur. Ásamt því að þú getur látið allar kvittanir verktaka sem unnið hafa við eignina fylgja til nýs eiganda.